Merkisatburður átti sér stað á Hrafnistu í Reykjavík í síðustu viku. En þá var haldið kveðjuhóf fyrir „Dísu í borðsalnum“ sem um leið er fyrsti starfsmaðurinn í 60 ára sögu Hrafnistuheimilanna sem nær því að hafa starfað hjá fyrirtækinu í 50 ár! Dísa byrjaði á Hrafnistu 18 ára gömul árið 1967 og kveður nú Hrafnistu eftir fjölbreyttan og merkan feril. Í tilefni tímamótanna var Dísu haldin mikil veisla - hún fékk 350.000 kr ferðainneign hjá ÚrvalÚtsýn í tilefni 50 ára starfsafmælisins, kveðjugjafir frá samstarfsfólki og Jóhannes Kristjánsson skemmtikratur kom og kitlaði hláturtaugar viðstraddra á meðan tertum og snittum var skolað niður með gosi, kaffi og einhverju sterkara.
Við þökkum Dísu kærlega fyrir samstarfið og þökkum fyrir þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu í öll þessi ár.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Reykjavík, Sigrún Kjærnested verkstjóri í borðsal, Jóhannes Kristjánsson, Dísa og Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjómannadagsráðs.