Þann 1. maí næstkomandi mun Guðfinna Eðvarðsdóttir hjúkrunardeildarstjóri Hlévangs láta af störfum og við hennar starfi tekur Kristín M. Hreinsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Kristín M. Hreinsdóttir útskrifaðist sem lyfjatæknir árið 2008 og starfaði sem lyfjatæknir í Lyf og heilsu í Keflavík 2008-2012. Hún hóf nám í hjúkrunarfræði 2012 og starfaði með hjúkrunarnámi bæði á Hrafnistu Nesvöllum og á lyf- og handlækningadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Kristín útskrifaðist með BS gráðu í hjúkrunarfræði frá háskólanum á Akureyri 2016 og starfaði sem hjúkrunarfræðingur á lyf- og handlækningadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja þar til hún hóf störf sem hjúkrunarfræðingur á Hrafnistu Hlévangi haustið 2016.
Við óskum Kristínu til hamingju með hjúkrunardeildarstjórastöðuna hjá Hrafnistu um leið og við þökkum Guðfinnu Eðvarðsdóttur innilega fyrir hennar starf og óskum henni velfarnaðar í framtíðinni.