Alzheimer kaffi verður haldið fimmtudaginn 2. febrúar nk. kl. 17:00 að Hæðargarði 31.
Kynning verður á erindum sem fram komu á ráðstefnu evrópsku Alzheimersamtakanna.
Alzheimerkaffi er fyrir fólk með alzheimer eða aðra minnissjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmiðið er að gefa fólki tækifæri til að koma saman, opna umræðuna um erfiðleika fólks með þennan sjúkdóm og gefa þeim og aðstandendum kost á að hitta aðra sem glíma við svipaðan vanda.
Einnig að veita ráðgjöf, fræðslu, spjalla, syngja, gleðjast og eiga gæðastundir.
Aðgangseyrir 500 kr.
Allir velkomnir!