Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu boða til 20 ára afmælismálþings samtakanna, þar sem fjallað verður um framtíð velferðarþjónustunnar.
Málþingið verður haldið þriðjudaginn 26. apríl kl. 14:30, Hrafnistu Sléttuvegi 27. Sjá auglýsingu HÉR
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ávarpar málþingið eftir að Björn Bjarki Þorsteinsson formaður SFV hefur opnað þingið. Í framhaldi af því verður boðið upp á þrjú spennandi erindi og pallborðsumræður um framtíðarsýn velferðarþjónustunnar:
- María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistuheimilanna
- Sandra Bryndísardóttir Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands
- Vilborg Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna
Pallborðsumræður.
Fundarstjóri er Gísli Einarsson.