Rannveig Oddsdóttir, sjúkraliði á Báruhrauni Hrafnistu Hraunvangi, hefur starfað á Hrafnistu í 20 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Rannveig fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Á myndinni eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi, Rannveig, María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistu, Hrefna Ásmundsdóttir hjúkrunardeildarstjóri á Báruhrauni og Aðalbjörg Ellertsdóttir aðstoðardeildarstjóri.