Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt stórbrotna jólatónleika á Hrafnistu í Laugarási í gær við mikinn fögnuð viðstaddra. Meðlimir Sinfóníuhljómsveitarinnar báru til okkar sannkallaðan jólaanda í Laugarásinn. Við færum þeim hjartans þakkir fyrir komuna og sendum öllum hátíðarkveðjur á aðventunni.