Top header icons

Fyrir starfsfólk

 

Örugg skjalamótttaka

Örugg skjalamótttaka

Fyrir starfsfólk

Hrafnista á Facebook

Happdrætti

Dregið var úr happdrætti iðjuþjálfunar eftir Sjómannadaginn á Hrafnistu í Reykjavík og vinningshafinn er íbúi Hrafnistu í Reykjavík, Hólmfríður Þóra Guðjónsdóttir. Hún má teljast heppnasta konan í húsinu því hún hreppti fyrsta, annan og þriðja vinning. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta hefur komið upp og ansi hreint skemmtileg tilviljun. 
Til gamans má geta að seldir voru 80 miðar í happdrættinu og Hólmfríður keypti 10 miða. Líkurnar á því að hún fengi fyrsta vinning er 12,5%, annan vinning er 11,4% og þriðja vinning er 10,3%. 
Hins vegar eru líkurnar að vinna alla þrjá vinninga 0,15 % .


Við óskum Hólmfríði Þóru innilega til hamingju með vinningana og þökkum henni kærlega fyrir þátttökuna.

 

 

Til baka takki