Kæru íbúar og aðstandendur.
Neyðarstjórn Hrafnistu hefur fengið ábendingu um að í bréfi sem sent var út til íbúa og ættingja í gær, þriðjudaginn 31. ágúst, hafi ekki komið nægilega skýrt fram með fjölda aðstandenda/gesta í heimsóknum. Því var sett inn viðbót í þær leiðbeiningar og er sú viðbót undirstrikuð hér í textanum fyrir neðan.
Aðrar leiðbeiningar sem koma fram í bréfinu frá í gær eru óbreyttar.
2. Fjöldi gesta í heimsókn.
- Neyðarstjórn dregur nú til baka þá beiðni til aðstandenda/gesta að það sé sami aðilinn sem komi í heimsókn nokkra daga í röð og skipti síðan við annan.
- Fleiri en einn aðstandandi/gestur getur komið í heimsókn á hverjum tíma.
- Neyðarstjórnin biðlar samt áfram til aðstandenda/gesta að sýna skynsemi og horfa til stöðunnar í samfélaginu á hverjum tíma.
Kær kveðja,
Neyðarstjórn Hrafnistu