Kæru íbúar og aðstandendur.
Flest allir íbúar Hrafnistuheimilanna hafa nú fengið 3ja skammtinn af bóluefni við Covid og ættu því að vera betur varðir en áður gegn Covid-smiti. Mikilvægt er þó að hafa í huga að fjöldi fólks í samfélaginu er að greinast með Covid og líklegt að lítið muni draga úr því næstu vikurnar, sérstaklega í ljósi þess að skólarnir eru að byrja af fullum krafti.
Vegna 3ju bólusetningar íbúanna telur Neyðarstjórn Hrafnistu svigrúm til að draga úr þeim aðgerðum sem gripið var til í kringum Verslunarmannahelgina.
Þær breytingarnar sem verða gerðar nú eru eftirfarandi:
- Breyting tengt andlitsgrímuskyldu gesta á herbergjum íbúa.
- ALLIR gestir þurfa að bera andlitsgrímu við komu á heimilin.
- Bólusettir gestir: Geta tekið niður andlitsgrímu inn á herbergi íbúa.
- ATHUGIÐ að óbólusettir / hálfbólusettir gestir þurfa að vera með andlitsgrímur inn á herbergi íbúa.
- Ekki er heimilt að vera með margnota grímur.
2. Fjöldi gesta í heimsókn.
- Neyðarstjórn dregur nú til baka þá beiðni til aðstandenda/gesta að það sé sami aðilinn sem komi í heimsókn nokkra daga í röð og skipti síðan við annan.
- Fleiri en einn aðstandandi/gestur getur komið í heimsókn á hverjum tíma.
- Neyðarstjórnin biðlar samt áfram til aðstandenda/gesta að sýna skynsemi og horfa til stöðunnar í samfélaginu á hverjum tíma.
3. Hópastarf/samkomur og stórar samverustundir
- Aftur verður leyfilegt að vera með hópastarf/samkomur og stórar samverustundir á Hrafnistuheimilunum.
- Sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun íbúa getur aftur farið fram í þeim rýmum sem til þess eru ætluð á hverju heimili fyrir sig.
Nánar um gildandi reglur á Hrafnistuheimilunum tengt Covid-19 má lesa HÉR í bréfi sem neyðarstjórn Hrafnistu hefur sent frá sér til íbúa og aðstandenda.
Kær kveðja,
Neyðarstjórn Hrafnistu.