Sunnudaginn 3. nóvember sl. var Guðsþjónusta haldin í samkomusalnum í Helgafelli á Allraheilagramessu sem er þakkar og minningardagur þeirra sem látin eru. Í messunni söng Anna Sigríður Helgadóttir mezzósópran eftirminnilega fallegu lögin Allsherjar Drottinn og Hvert örstutt spor. Anna Sigríður hefur tekið þátt í margskonar tónlistarflutningi, eins og einsöngstónleikum, óperu og óperettuuppfærslum, gospeltónleikum og djasstónleikum. Hún hefur komið víða fram, bæði hér heima og einnig erlendis. Söngfélaganir Jón Helgason, Þórunn Guðmundsdóttir og Kristín Guðjónsdóttir leiddu safnaraðarsöng. Kristín las einnig ritningarlestur. Organisti var Bjartur Logi Guðnason. Sr. Svanhildur Blöndal prédikaði og þjónaði fyrir altari.