Kristín Pétursdóttir hefur hafið störf á skrifstofu Sjómannadagsráðs. Hún mun taka við af Jónu Karlsdóttur sem lætur af störfum 22. júní n.k. eftir 10 ára starf.
Kristín starfaði áður sem skrifstofustjóri á Sólheimum. Þar á undan vann hún m.a. á gæðasviði Actavis Group, hjá Advel lögmönnum og hjá Viðskiptaráði.
Við bjóðum Kristínu velkomna og óskum henni velfarnaðar í nýju starfi.