Fréttasafn

Cecilia Cruz Castro 10 ára starfsafmæli á Hrafnistu í Reykjavík

F.v. Pétur, Cecilia og Sigrún.
Lesa meira...

 

Cecilia Cruz Castro, starfsmaður í borðsal Hrafnistu í Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.

 

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri, Cecilia og Sigrún Kjærnested verkstjóri í borðsal.

 

 

Lesa meira...

Þorrablót á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 27. janúar

Lesa meira...

Þorrablót Hrafnistu í Hafnarfirði fer fram föstudaginn 27. janúar nk.

Skráning og miðakaup

Ókeypis er fyrir heimilisfólk, gesti í hvíldarinnlögn og starfsfólk.

Verð fyrir gest kr. 4.000.-

Verð fyrir fólk í dægradvöl og DAS-klúbb er kr. 3.000.-

ATH.Meðlimir í DAS-klúbb, íbúar í þjónustuíbúðum og aðrir gestir geta ekki boðið með sér gestum. 

Skráning og miðakaup verða í verslun á 1. hæð fram að hádegi miðvikudaginn 25. janúar.

 

Sjá nánari auglýsingu með því að smella hér

 

 

 

Lesa meira...

Þorrablót á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 20. janúar 2017

Lesa meira...

 

Þorrablót Hrafnistu í Reykjavík fer fram föstudaginn 20. janúar nk.

Skráning og miðakaup

Ókeypis er fyrir íbúa heimilisins og hver íbúi getur boðið með sér einum gest.

Verð fyrir gest kr. 4.000.-

Verð fyrir meðlimi í DAS-klúbbnum kr. 3.000.- (meðlimir í DAS-klúbbnum geta ekki boðið með sér gest).

Verð fyrir gesti í dagþjálfun kr. 3.000.- (gestir í dagþjálfun geta ekki boðið með sér gest).

 

Skráning og miðakaup verða á upplýsingaborði í aðalanddyri Hrafnistu Reykjavík til miðvikudagsins 18. janúar milli kl. 10:00 – 16:00. 

 

Sjá nánari auglýsingu með því að smella hér

 

 

Lesa meira...

Garðabær og Hrafnista semja um rekstur Ísafoldar

Lesa meira...

 

Samningur um að Hrafnista taki við rekstri hjúkrunarheimilisins Ísafoldar í Garðabæ var í dag undirritaður af þeim Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra Garðabæjar og Guðmundi Hallvarðssyni stjórnarformanni Sjómannadagsráðs, eiganda Hrafnistu. Samkvæmt samningnum tekur Hrafnista við rekstri Ísafoldar, hjúkrunarheimilis frá og með 1. febrúar næstkomandi.

Garðabær hefur rekið hjúkrunarheimilið Ísafold frá árinu 2013 en þar búa 60 einstaklingar. Undanfarið ár hefur Garðabær átt í viðræðum við ríkið um að það taki við rekstrinum en þær viðræður skiluðu ekki árangri. Í framhaldinu fól bæjarráð bæjarstjóra í nóvember sl. að kanna möguleika þess að þriðji aðili kæmi að rekstrinum. Viðræður Garðabæjar og Hrafnistu hófust í kjölfarið og hafa staðið yfir frá því í nóvember.

Af hálfu Garðabæjar hefur verið lögð áhersla á að við rekstri Ísafoldar taki aðili með umfangsmikla þekkingu og reynslu sem geti leitt áframhaldandi framþróun starfseminnar. Gunnar Einarsson bæjarstjóri segir það sannfæringu sína að því markmiði verði náð með samningi við Hrafnistu. „Ég tel það afar góðan kost að Hrafnista taki við rekstri Ísafoldar. Þar er mikil sérþekking og reynsla til staðar sem á eftir að koma starfseminni og íbúum okkar á Ísafold til góða.“

Fyrir jólin voru kynningarfundir með starfsfólki, íbúum og aðstandendum um málið.

Hrafnista er í dag ein stærsta heilbrigðisstofnun landsins með starfsemi í fimm sveitarfélögum og þjóna Hrafnistuheimilin um eitt þúsund öldruðum á hverjum degi. Þar af búa tæplega 600 manns í hjúkrunarrýmum sem er um 25% hjúkrunarrýma í landinu. Fyrsta Hrafnistuheimilið tók til starfa í Reykjavík árið 1957 og er því 60 ára á þessu ári. Í Hafnarfirði eru 40 ár síðan Hrafnista tók þar til starfa og 2010 tók þriðja Hrafnistuheimilið til starfa í Kópavogi. Í Reykjanesbæ hefur Hrafnista rekið tvö hjúkrunarheimili, Hlévang og Nesvelli, frá árinu 2014 og verður Ísafold því sjötta hjúkrunarheimilið þar sem Hrafnista annast rekstur.

 

Fréttatilkynning frá Garðabæ og Hrafnistu 6. febrúar 2017.

Nánari upplýsingar veita Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar í síma 820 8541, netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., og Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu, í síma 841 1600, netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

 

 

Lesa meira...

Síða 132 af 175

Til baka takki