Fréttasafn

Rebekkustúka nr. 18 Eldey færði Hlévangi Reykjanesbæ gjöf

Lesa meira...

 

Rebekkustúka nr. 18 Eldey I.O.O.F. á Íslandi færði Hlévangi í Reykjanesbæ 100.000 kr. styrk til að bæta aðstöðu íbúa í setustofu.  Þökkum við þeim innilega fyrir stuðninginn.

 

Á meðfylgjandi mynd veitir Þuríður Elísdóttir, forstöðumaður Hrafnistu í Reykjanesbæ Nesvalla og Hlévangs, styrknum viðtöku.

 

Lesa meira...

Stofnfundur Hollvinasamtaka Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 30. mars nk. kl. 17:00

Lesa meira...

 

Í tilefni af 40 ára afmæli Hrafnistu í Hafnarfirði hafa nokkrir velunnarar heimilisins tekið höndum saman og stefna að stofnun hollvinasamtaka heimilisins á þessum merku tímamótum.

Stofnfundur verður haldinn fimmtudaginn 30. mars nk. kl. 17:00 í Menningarsal (1. hæð), Hrafnistu í Hafnarfirði og eru allir velkomnir.

Markmið samtakanna er að styðja við starfsemi og velferð heimilisins.

Hrafnista hefur þjónað Hafnfirðingum vel á þeim 40 árum sem liðin eru frá því að hún tók fyrst til starfa, á Sjómannadaginn þann 5. júní 1977. Í dag eru rými fyrir 209 einstaklinga og á heimilinu starfa 333, af þeim eiga 62% lögheimili í Hafnarfirði.

Þegar skoðað er hvaðan íbúarnir koma þá kemur í ljós að 91 íbúi á heimilinu var með lögheimili í Hafnarfirði er hann flutti inn.

Einnig er Hrafnista með hvíldarrými og á árinu 2016 komu 80 einstaklingar með lögheimili í Hafnarfirði í hvíldarinnlögn og  nú í mars voru 11 Hafnfirðingar í hvíld.  Fjöldi daga í innlögn voru 2.323 dagar eða að meðaltali 29 dagar á hvern þeirra. 

Í dag eru t.a.m. 79 einstaklingar með lögheimili í Hafnarfirði sem sækja dagdvöl á Hrafnistu og á biðlista eftir þjónustu eru 59 Hafnfirðingar.        

Við hvetjum áhugasama til að mæta á stofnfundinn og taka þátt í starfi félagsins frá byrjun.

 

Velunnarar Hrafnistu í Hafnarfirði.

 

Lesa meira...

Gjafir til Nesvalla og Hlévangs

Lesa meira...

 

Í tilefni af 60 ára afmæli Starfsmannafélags Suðurnesja færði félagið  Félagsstarfi eldri borgara á Nesvöllum og Hlévangi 150,000 kr styrk, samtals að upphæð 300,000 kr. Einnig færðu þeir Félagi eldri borgara á Suðurnesjum og félagsstarfi aldraðra í Grindavík sömu upphæðir.  Buðu þeir til kaffisamsætis í húsnæði sínu að Kjarrmóa í Reykjanebæ þar sem gjafirnar voru afhentar. Þökkum við þeim innilega fyrir þessar höfðinglegu gjafir.

 

Lesa meira...

Vegleg gjöf til Hrafnistu í Hafnarfirði frá Oddfellow stúku Rebekku NR 8, Rannveigu

Lesa meira...

 

Oddfellow stúkan Rebekka NR 8, Rannveig, færði Hrafnistu í Hafnarfirði veglega gjöf í árslok 2016.

Um er að ræða tvö fullkomin þjálfunarhjól, teg. MOTOmed viva 2, frá Eirberg og eru þau staðsett í sjúkraþjálfun heimilisins.

Hjólin henta ákaflega breiðum hópi heimilismanna því hægt er að hjóla í þeim í hjólastól sem og venjulegum stól.

Ef fólk getur ekki hjólað sjálft þá er mótor innbyggður í hjólin sem tekur yfir og framkallar hreyfinguna.

Hrafnista getur seint þakkað svona höfðinglega gjöf  og er það ómetanlegt fyrir heimilið að eiga slíka bakhjarla. 

 

 

Lesa meira...

Síða 127 af 175

Til baka takki