Hrönn Önundardóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á Ölduhrauni Hrafnistu Hafnarfirði.
Hrönn lauk B.Sc. prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og diplómagráðu í starfstengdri siðfræði frá sama skóla árið 2006. Árið 2015-2016 stundaði hún nám í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun á vegum símenntunar Háskólans á Akureyri og VogL.
Hrönn gegndi stöðu hjúkrunarforstjóra á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði frá árinu 2011 til 2016, en tekur nú við stöðu hjúkrunardeildarstjóra Ölduhrauns þann 5. nóv. n.k.
Við bjóðum Hrönn hjartanlega velkomna til starfa á Hrafnistu.