Kristjana E. Kristjánsdóttir, starfsmaður í aðhlynningu á Lækjartorgi Hrafnistu Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 20 ár.
Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Sigrún Vilhjálmsdóttir aðstoðardeildarstjóri á Lækjartorgi, Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Reykjavík, Kristjana og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.