Gerður Sveinsdóttir, starfsmaður á Vitatorgi Hrafnistu í Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár.
Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Anna María Friðriksdóttir deildarstjóri á Vitatorgi, Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Reykjavík, Gerður og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.