Thorvaldsensfélagið gaf á dögunum Hrafnistu í Reykjavík og Hrafnistu í Kópavogi Master Turner snúningslak en mikil ánægja hefur verið með þau á Hrafnistu í Hafnarfirði. Lakið býður meðal annars upp á þann möguleika að nota lyftara til að aðstoða við snúning. Slíkt dregur úr líkamlegu álagi á starfsmann auk þess sem það er mun þægilegra fyrir þann einstakling sem getur ekki snúið sér sjálfur í rúmi. Thorvaldsensfélagið fagnar stórafmæli í ár, en það er 115 ára gamalt. Thorvaldsenskonur opnuðu bazarinn við Austurstræti 4 árið 1901 og hafa rekið hann alla tíð síðan. Allur ágóði af sölu bazarsins rennur til góðgerðamála. Við hvetjum alla til að kíkja við á bazarnum ef þið eigið leið framhjá, þar sem mikið er til af fallegum vörum og ekki skemmir fyrir að ágóðinn renni til góðgerðamála. Hrafnista í Reykjavík og Kópavogi þakka kærlega fyrir gjöfina sem mun koma að góðum notum og hefur mikið verið óskað eftir.