Hrafnista í Kópavogi tók forskot á kvennahlaupið þann 25 maí sl. Veðrið hefði getað leikið betur við okkur en við létum það nú ekki skemma fyrir okkur og fengum svo uppstyttu rétt á meðan gengið var.
Byrjað var á upphitun við ljúfa tóna og léttar veitingar. Harmonikkuspil gerði daginn skemmtilegan og sumir tóku meira að segja snúning á „dansgólfinu“.