Á hverju ári er haldinn ráðstefnudagur á Hrafnistu. Á ráðstefnudegi fær Hrafnista til sín ýmsa ólíka fyrirlesara til að flytja erindi fyrir starfsfólk. Dagskráin hefst kl. 11:00 og stendur til kl. 15:00. Hún er skipulögð þannig að fengnir eru 5-6 fyrirlesarar til þess að flytja erindi, bæði á Hrafnistu í Reykjavík og Hrafnistu í Hafnarfirði og er því sama dagskrá í boði á báðum stöðum.
Starfsfólk er hvatt til að hjálpast að við að gefa hvort öðru tækifæri til að hlýða á þau erindi sem höfðar hvað mest til þeirra. En lagt er kapp á að hafa dagskránna sem fjölbreyttasta svo að allir finni eitthvað við sitt hæfi og sem flest starfsfólk fái sem mest út úr deginum.
Dagskrá ráðstefnudagsins má finna hér