Framtíðarþing um farsæla öldrun verður haldið í Þjónustumiðstöð aldraðra á Selfossi, Grænumörk 5, mánudaginn 16. nóvember nk. kl. 16:30 - 20:30.
MARKMIÐ ÞINGSINS:
Skapa umræðu meðal áhugasamra um öldrunarmál, væntingar og viðhorf til efri áranna.
Vekja jákvæða athygli á eldri borgurum, stöðu þeirra og hvernig þeir líta á mál sín til framtíðar.
Óskað er eftir þátttakendum úr eftirfarandi hópum:
75 ára og eldri
55-75 ára
55 ára og yngri
Starfsfólk sem tengist öldrunarmálum
Skráning sendist á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 693 9508 eigi síðar en 10. nóvember nk. Athugið að takmarkaður fjöldi er í hverjum hóp. Taka þarf fram nafn, kennitölu og síma. Þátttaka er öllum heimil og án endurgjalds.
Boðið verður upp á veitingar.