Nýtt Hrafnistubréf, kynningarblað um starfsemi Hrafnistu, er komið út. Í þessu nýja tölublaði er stiklað á stóru yfir það helsta sem drifið hefur á daga okkar sem lifum og störfum á Hrafnistu frá því að síðasta Hrafnistubréf var gefið út sl. vor. Einnig er þar að finna skemmtileg viðtöl, greinar og fleira ásamt mörgum skemmtilegum myndum úr starfinu.
Forsíðumyndina að þessu sinni prýðir hefðarkötturinn Shrek sem heldur mikið til á Hrafnistu í Laugarási þar sem hann hittir marga á hverjum degi og fær gott klapp eða gott spjall. Einnig fer hann í eftirlitsferðir um húsið og heilsar upp á íbúa og starfsfólk en Shrek er hvers manns hugljúfi og í miklu uppáhaldi meðal íbúa, starfsfólks og gesta.