Anna Ruth Antonsdóttir, sjúkraliði á Bylgjuhrauni Hraunvangi í Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í hvorki meira né minna en 30 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Anna Ruth fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Á myndinni eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi, Hildur Dögg Ásgeirsdóttir aðstoðardeildarstjóri, Eyrún Pétursdóttir hjúkrunardeildarstjóri á Bylgjuhrauni, Anna Ruth og María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistu.