Þau Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækningadeildar Landspítala og formaður félags íslenskra öldrunarlækna, María Fjóla Harðardóttir, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og forstjóri Hrafnistuheimilanna, Steinunn Þórðardóttir, yfirlæknir heilabilunareiningar Landspítala og formaður Læknafélags Íslands og Sigurjón N. Kjærnested, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa ritað grein varðandi öryggi íbúa á heilbrigðisstofnunum. Greinina má nálgast hér: Öryggi íbúa á heilbrigðisstofnunum: Fjötrar eða öryggisbúnaður?
Þær María Fjóla og Steinunn voru gestir í morgunþættinum Bítið á Bylgjunni í morgun. Viðtalið má nálgast hér: Bítið – Getum við treyst að vel sé farið með gamla fólkið okkar?