Sumargleði Hrafnistu í Laugarási var haldin í dag. Það viðraði svo sannarlega vel á íbúa og starfsfólk sem skelltu sér út í garð til að njóta veðurblíðunnar og hafa gaman saman í hópleikfimi, samsöng og gleði.
Gleðin er lykillinn að langlífinu
Stöð2 leit við og spjallaði við þær Ólínu Þorvaldsdóttur og Herminu Lilliendahl sem voru sammála um að góða skapið og gleði í lífinu væri lykillinn að langlífi (spila frétt)
Hljómsveitin BREK spilaði með í söngstund Hörpu
Harpa Þorvaldsdóttir söngkona hefur komið til okkar á Hrafnistu í Laugarási undanfarin ár með vinsæla söngstund fyrir íbúa okkar og gesti í dagdvölum. Í gær komu með henni leynigestir en það voru meðlimir hljómsveitarinnar BREK, en Harpa er einmitt í þeirri hljómsveit og vöktu þau mikla lukku.