130 milljarðar króna til hjúkrunarheimila í nýjum tímamótasamningi
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti í gær nýja samninga Sjúkratrygginga Íslands, fyrir hönd íslenska ríkisins, um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimila á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Innan samtakanna eru 45 rekstraraðilar hjúkrunarheimila víðs vegar um landið sem starfa samkvæmt samningum Sjúkratrygginga Íslands.
„Á samningstímanum verður unnið að verkefnum sem miða að bættu rekstrarumhverfi heimilanna til framtíðar og auknum gæðum þjónustu þeirra,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðherra.
Samningarnir ná til næstu þriggja ára og hljóða upp á 130 milljarða. Þetta eru því sannarlega mikilvæg tímamót.