Guðrún Lovísa hefur verið ráðin aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á 2. hæð á Hrafnistu Skógarbæ frá 1. janúar 2022 í afleysingu fyrir Sigríði, sem nú er í fæðingarorlofi.
Guðrún Lovísa útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 2004 frá Háskóla Íslands. Hún hefur bætt við sig námi í gjörgæsluhjúkrun auk þess sem hún er nú í MS námi í forystu og stjórnun. Guðrún Lovísa hefur starfað sem aðstoðardeildarstjóri á hjúkrunarheimilinu Uppsölum, auk þess sem hún starfaði í 5 ár sem hjúkrunarfræðingur á Hrafnistu Boðaþingi.
Guðrún Lovísa hefur víðtæka klíníska reynslu s.s. af gjörgæslu, slysa- og bráðamóttöku, þvagfæra- og almennri skurðdeild.
Við bjóðum Guðrúnu Lovísu hjartanlega velkomna í okkar öfluga starfsmannahóp á Hrafnistu.