Ólöf Erna Arnardóttir, sjúkraliði á Ölduhrauni Hrafnistu Hraunvangi, hefur starfað á Hrafnistu í 25 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Ólöf Erna fékk afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu að þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi, Hrönn Önundardóttir hjúkrunardeildarstjóri á Ölduhrauni, Ólöf Erna, Hrefna Ásmundsdóttir hjúkrunardeildarstjóri á Báruhrauni og María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistu.