Neyðarstjórn Hrafnistu hefur sent út bréf til íbúa og aðstandenda varðandi þær ráðstafananir sem grípa þarf til á Hrafnistuheimilunum vegna vaxandi fjölda smita á Covid-19 í samfélaginu.
Bréf til íbúa og aðstandenda má lesa HÉR
Skilaboð til gesta og annarra sem koma inn á Hrafnistuheimilin má lesa HÉR
Kæru íbúar og aðstandendur.
Því miður er ljóst að fjöldi Covid-smita í samfélaginu er í miklum vexti. Því þarf að grípa strax til aðgerða á Hrafnistuheimilunum og fylgja tilmælum sóttvarnaryfirvalda. Þetta er gert svo hægt sé að vernda okkar viðkvæmasta hóp. Í aðgerðum sínum vill neyðarstjórn Hrafnistu leggja áherslu á að hertar aðgerðir miðist við að hafa sem minnst áhrif á daglegt líf íbúanna. Til að svo megi verða er lögð enn meiri áhersla á sóttvarnarreglur tengt starfsmönnum, aðstandendum, gestum og öðrum þeim sem koma á Hrafnistuheimilin.
Reglum heimsóknartíma hefur ekki verið breytt, en við biðjum alla að lesa vel og fylgja eftirfarandi:
- Grímuskylda– ALLIR gestir þurfa að bera andlitsgrímu við komu á heimilin. Heimilt er að taka grímuna niður inn á herbergi íbúa. Ekki er heimilt að vera með margnota grímur.
- Aðstandendur og gestir á aldrinum 0-30 ára– Neyðarstjórnin biðlar til aðstandenda og gesta í þessum aldurshópi að koma ekki í heimsókn. Börn eru flest ekki bólusett og meiri hluti Covid smita í samfélaginu í dag eru að greinast í aldurshópnum 18-29 ára.
- Ekki er heimilt að nýta setustofur og borðstofur eininga/deilda til heimsókna né önnur alrými á heimilunu s.s. borðsali.
- Virða þarf 2ja metra regluna í samskiptum við starfsfólk.
- Íbúum er áfram heimilt að fara út í garð og í gönguferðir með sínum nánustu, en einnig er heimilt að fara með íbúa út af heimilinu í bílferðir eða heimsóknir. Neyðarstjórnin biðlar til íbúa, aðstandenda og annarra gesta að fara ekki í mannfagnaði eða aðrar samkomur með íbúa.
- Fullbólusettir aðstandendur sem dvalið hafa erlendis– eins og áður mega þeir koma í heimsókn að höfðu samráði við stjórnendur deilda og að því tilskyldu að þeir séu með öllu einkennalausir. Neyðarstjórn Hrafnistu vill samt biðla til þeirra að fara í skimun eftir að þeir koma til landsins og að niðurstaða liggi fyrir áður en þeir koma í heimsókn.
- Óbólusettir aðstandendur sem eru að koma erlendis frá mega ekki koma í heimsókn inn á heimilin fyrr en 14 dagar eru liðnir frá heimkomu (undanþágu er hægt að fá í samráði við stjórnendur deildar ef um skyndileg veikindi/lífslokameðferð er að ræða hjá íbúa).
- Undanþága frá reglum um heimsóknir hverju sinn, er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.
Alls ekki koma í heimsókn ef:
- Þú ert í sóttkví.
- Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
- Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
- Þú ert með COVID-19 lík einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang, uppköst o.fl.).
- Þú ert með einhver önnur almenn einkenni um veikindi.
Munið að sýna ýtrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Við þurfum öll að hafa í huga persónulegar sýkingavarnir s.s. handþvott og handsprittun.
Bólusettir geta líka smitast af Covid og smitað aðra.
Neyðarstjórn Hrafnistu leggur áherslu á að staðan getur breyst mjög hratt og mögulegt er að grípa þurfi til frekari aðgerða og takmarkana ef þörf krefur.
Kær kveðja,
Neyðarstjórn Hrafnistu