Í ljósi breytinga á framgangi heimsfaraldursins, Covid-19, eru heimsóknargestir á Hrafnistu minntir á mikilvægi þess að gæta vel að persónubundnum sóttvörnum s.s. handþvotti og handsprittun. Einnig eru heimsóknargestir minntir á að koma alls ekki í heimsókn ef þeir eru með einhver önnur almenn einkenni um veikindi.
Neyðarstjórn Hrafnistu hefur ákveðið að gera ekki stórvægilegar breytingar á reglum um heimsóknir að svo stöddu en leggur áherslu á að heimsóknargestir séu eingöngu í heimsókn á herbergjum íbúa, en ekki í setustofum eða borðstofum eininga/deilda eða í öðrum alrýmum heimilanna.
Bréf sem neyðarstjórnin sendi út til íbúa og aðstandenda má lesa HÉR
Neyðarstjórn Hrafnistu leggur áherslu á að nauðsynlegt er að fylgja tilmælum sóttvarnaryfirvalda og grípa til frekari aðgerða og takmarkana ef þörf krefur.