Samkvæmt sóttvarnaryfirvöldum er staðan á Íslandi varðandi heimsfaraldur Covid-19 nú góð og verulegar tilslakanir hafa verið boðaðar á samkomutakmörkunum frá og með 15. júní. Þetta eru gleðifréttir og hefur Neyðarstjórn Hrafnistu ákveðið að aflétta verulega þeim heimsóknartakmörkunum sem hafa verið undanfarin misseri á heimilunum.
Frá og með 15. júní verða heimilin opnuð að nýju eins og fyrir tíma kórónuveirunnar. Engar takmarkanir eru á fjölda heimsóknargesta og aðstandendur hafa heimild til að vera í samrýmum deilda með íbúum og starfsfólki. Áfram verður þó ávallt að sýna ýtrustu varkárni í heimsóknum og mikilvægt er að hafa áfram í huga persónulegar sýkingavarnir s.s. handþvott og handsprittun til forðast að smit berist á milli einstaklinga.
Neyðarstjórn Hrafnistu tilkynnti íbúum að aðstandendum þessar breytingar í dag:
Tilslökun á heimsóknartakmörkunum á Hrafnistuheimilunum frá og með þriðjudeginum 15. júní 2021