Gerðar hafa verið tilslakanir á heimsóknartakmörkunum Hrafnistuheimilanna frá og með deginum í dag, þriðjudaginn 11. maí.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Tveir gestirhafa leyfi til að heimsækja hvern íbúa í einu, en fleiri geta komið yfir daginn.
- Börn undir 18 ára hafa leyfi til að koma í heimsókn, en mikilvægt er að hafa í huga að þau teljast annar af þessum tveimur sem koma í heimsókn á hverjum tíma.
- Íbúum er áfram heimilt að fara út í garð og í gönguferðir með sínum nánustu, en einnig er heimilt að fara með íbúa út af heimilinu í bílferðir eða heimsóknir. Nú eru 50 manna fjöldatakmarkanir í gildi í samfélaginu, en neyðarstjórn Hrafnistu mælir eindregið með að íbúar fari ekki í heimsókn í svo stóra hópa.
Munið að sýna ýtrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Við þurfum öll að hafa í huga persónulegar sýkingavarnir s.s. handþvott og handsprittun.
Minnum á að dæmin sýna að bólusettir geta líka smitast af Covid og smitað aðra.
Neyðarstjórn Hrafnistu tilkynnti íbúum að aðstandendum þessar breytingar fyrr í dag:
Tilslakanir á heimsóknarreglum Hrafnistuheimilanna taka gildi þriðjudaginn 11. maí 2021