Björg Ólafsdóttir, starfsmaður í sjúkraþjálfun Hrafnistu Hraunvangi í Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi, María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistu, Björg og Íris Huld Hákonardóttir deildarstjóri sjúkraþjálfunar Hrafnistu Hraunvangi.