María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu, hlaut á dögunum viðurkenningu FKA (félag kvenna í atvinnulífinu) árið 2021. Af því tilefni afhenti Hálfdan Henrysson, formaður Sjómannadagsráðs, Maríu Fjólu blómvönd á fundi stjórnar ráðsins og óskaði henni hjartanlega til hamingju með þessa merku viðurkenningu fyrir hönd stjórnar.
María Fjóla er sjötti forstjóri Hrafnistu og jafnframt fyrsta konan til að gegna því starfi í tæplega 64. ára sögu Hrafnistu en fyrsta Hrafnistuheimilið tók til starfa á sjómannadaginn 2. júní 1957.
Hrafnista rekur í dag átta hjúkrunarheimili í fimm sveitarfélögum og er stærsta hjúkrunarheimili landsins þegar litið er til fjölda íbúa, þjónustuþega og starfsfólks.