Í dag birtist grein á visir.is eftir þær Önnu Birnu Jensdóttur framkvæmdastjóra Sóltúns, Eybjörgu Hauksdóttur framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og Maríu Fjólu Harðardóttur forstjóra Hrafnistu.
Í greininni er m.a. rætt um þær leiðbeiningar sem samstarfshópur Sóttvarnarlæknis, Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og heilbrigðisráðuneytisins hefur gefið út um að einungis sé opið fyrir heimsóknir frá einum til tveimur aðstandendum á dag á hjúkrunarheimilum um hátíðirnar. Þessar aðgerðir miðast allar fyrst og fremst við að vernda viðkvæman hóp íbúa hjúkrunarheimilanna. Einnig er mælt gegn því að íbúar hjúkrunarheimila fari í boð heim til ættingja á þessum tíma. „Þetta eru þung skref sem enginn vill í raun þurfa að taka, en eru nauðsynleg.“
Greinina í heild sinni má lesa hér fyrir neðan:
Hjúkrunarheimilin og heimsóknir um jólin