Jólaundirbúningur er í fullum gangi á Hrafnistuheimilunum þessa dagana. Smákökubakstur með lokkandi ilm úr eldhúsinu, föndur, jólabingó, spil, heitt súkkulaði með rjóma, sherrýtár og notalegar samverustundir. Aðventuvagn Þjóðleikhússins hefur verið á ferðinni á milli Hrafnistuheimilanna og glatt íbúa okkar með jólasögum, söng og gleði.
Hrafnista er svo lánsöm að eiga marga ómetanlega velgjörðarmenn. Má þar m.a. nefna Lionsmenn sem mættu galvaskir og settu upp jólatré á Hrafnistu Hlévangi í Reykjanesbæ í lok nóvember.
Hrafnista Ísafold í Garðabæ hefur átt farsælt samstarf við leikskólann Sjáland og á dögunum komu leikskólabörnin í heimsókn í garðinn á Ísafold og skreyttu jólatréð í garðinum með föndri sem þau voru sjálf búin að útbúa.
Í vikunni var svo Rauður dagur þar sem ölllum var boðið upp á jólamat og jólagjöfum var dreift til starfsmanna.
Meðfylgjandi myndir, sem teknar hafa verið á aðventunni á Hrafnistuheimilunum, tala sínu máli.