Ágætu íbúar og aðstandendur,
Neyðarstjórn Hrafnistu hefur ákveðið að framlengja gildandi heimsóknarreglur eins og þær hafa verið síðustu vikur. Samfélagið er enn á viðkvæmu stigi í faraldrinum og því verður ekki rýmkað að þessu sinni. Eins og ávallt horfir Neyðarstjórn Hrafnistu til stöðunnar almennt í samfélaginu hvað fjölda covid smita varðar, sem og þeirra reglna sem í gildi eru á hverjum tíma. Neðangreindar reglur munu því gilda áfram til og með 9. desember næstkomandi.
Upplýsingar um heimsóknartíma veitir hvert heimili fyrir sig.
- Aðeins einn gesturhefur leyfi til að heimsækja hvern íbúa tvisvar sinnum 2.des-9.des.
- Munið að spritta hendur við komu og áður en þið yfirgefið heimilið.
- Allir gestir þurfa að koma með andlitsgrímu (maska). Óheimilt er að koma með taugrímu.
- Vinsamlega hafið grímuna á ykkur allan tímann á meðan heimsókn stendur.
- Vinsamlega farið beint inn á herbergi íbúa, ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er ekki inni á herbergi þá biðjið þið starfsfólk að sækja hann, ekki gera það sjálf.
- Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa.
- Undanþága frá þessu er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.
- Börn undir 18 ára hafa ekki leyfi til að koma í heimsókn.
- Heimilt er að fara með íbúa út í göngutúr í nærumhverfi á meðan heimsókn stendur.
- Ekki er heimilt að fara í bíltúr eða heimsókn með heimsóknargesti sínum.
- Starfsfólki Hrafnistu ber skv. lögum að tilkynna brot á sóttvarnarlögum til lögreglu ef þeir verða varir við slík brot.
Vinsamlega EKKI koma inn á Hrafnistu ef:
- Þú ert í sóttkví eða einangrun
- Þú bíður eftir niðurstöðu úr sýnatöku
- Þú ert með flensulík einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
- Þú varst erlendis fyrir minna en 14 dögum.
Kæra þakkir fyrir samstöðuna.
Með vinsemd og virðingu,
Neyðarstjórn Hrafnistu*
*Í Neyðarstjórn Hrafnistu sitja aðilar úr Framkvæmdaráði Hrafnistu. Kallað er eftir ráðgjöf frá sérfræðingum og fleiri aðilum sem sitja fundi Neyðarstjórnar ef þörf þykir hverju sinni. Netfang neyðarstjórnar er neydarstjorn@hrafnista.is