Þessa dagana fer smákökubakstur fram á Hrafnistuheimilunum. Í gær var bakað á Hrafnistu Nesvöllum og á næstu dögum fer félagsstarfið á milli deilda og bakar með íbúum fyrir jólin. Heimilin fyllast af dásamlegum smáköku ilm og mikil gleði er við baksturinn. Þess á milli njóta íbúar þess að vera saman og ýmislegt er fundið sér til dundurs eins og myndirnar sýna sem teknar voru á Hrafnistu Nesvöllum á dögunum.