Neyðarstjórn Hrafnistu hefur ákveðið að halda skipulagi heimsóknartíma áfram óbreyttu fyrir aðstandendur til þriðjudagsins 24. nóvember. Fylgst verður með þróun COVID-19 smita í samfélaginu og beðið frekari fyrirmæla frá sóttvarnarlækni. Sérstaklega er minnt á mikilvægi þess að gestir hafi grímuna á sér allan tímann á meðan á heimsókn stendur.
HÉR má lesa bréfið sem sent hefur verið út til íbúa og aðstandenda.
Ágætu íbúar og aðstandendur,
Neyðarstjórn Hrafnistu hefur ákveðið að hafa áfram sama skipulag á heimsóknatímum líkt og hefur verið síðustu vikur en mun fylgjast áfram náið með fjölda COVID-19 smita í samfélaginu ásamt frekari tilmælum frá sóttvarnarlækni. Heimsóknarreglur og annað verklag innan Hrafnistu verður endurskoðað 24. nóvember næstkomandi.
Upplýsingar um heimsóknartíma veitir hvert heimili fyrir sig.
- Aðeins einn gesturhefur leyfi til að heimsækja hvern íbúa tvisvar sinnum17-24.nóvember.
- Munið að spritta hendur við komu og áður en þið yfirgefið heimilið.
- Allir gestir þurfa að koma með andlitsgrímu (maska). Óheimilt er að koma með taugrímu.
- Vinsamlega hafið grímuna á ykkur allan tímann á meðan heimsókn stendur.
- Vinsamlega farið beint inn á herbergi íbúa, ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er ekki inni á herbergi þá biðjið þið starfsfólk að sækja hann, ekki gera það sjálf.
- Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa.
- Undanþága frá þessu er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.
- Börn undir 18 ára hafa ekki leyfi til að koma í heimsókn.
- Heimilt er að fara með íbúa út í göngutúr í nærumhverfi á meðan heimsókn stendur.
- Ekki er heimilt að fara í bíltúr eða heimsókn með heimsóknargesti sínum.
VinsamlegaEKKI koma inn á Hrafnistu ef:
- Þú ert í sóttkví eða einangrun
- Þú bíður eftir niðurstöðu úr sýnatöku
- Þú ert með flensulík einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
- Þú varst erlendis fyrir minna en 14 dögum.
Kæra þakkir fyrir samstöðuna.
Með vinsemd og virðingu,
Neyðarstjórn Hrafnistu*
* Í Neyðarstjórn Hrafnistu sitja aðilar úr Framkvæmdaráði Hrafnistu. Kallað er eftir ráðgjöf frá sérfræðingum og fleiri aðilum sem sitja fundi Neyðarstjórnar ef þörf þykir hverju sinni. Netfang neyðarstjórnar er neydarstjorn@hrafnista.is