Vegna COVID var árleg hausthátíð á Hrafnistu Hraunvangi heldur minni í sniðum þetta árið eins og komið hefur fram, en skemmtileg var hún og hátíðleg. Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson sundu nokkur lög og íbúar og starfsfólk gæddu sér á dýrindis kótilettum með öllu tilheyrandi undir ljúfum tónum frá Böðvari Magnússyni. Í lokin söng Helena Ýr Helgadóttir fyrir viðstadda, en hún er að stíga sín fyrstu skref í að koma fram á tónleikum.
Dagskránni var sjónvarpað upp á hjúkrunardeildir svo að aðrir íbúar og starfsfólk hefðu tök á að fylgjast með því sem fram fór.
Bleiki liturinn var að sjálfsögðu í hávegum hafður í tilefni af bleikum október.
Ljósmyndari : Jón Önfjörð Arnarsson