Anna Birna Jensdóttir, í stjórn Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV), var gestur á blaðamannafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í dag. Þar færði hún Víði Reynissyni afmælistertu frá íbúum og starfsfólki hjúkrunarheimila. Víðir þakkaði kærlega fyrir sig og sendi fingurkoss í þakklætisskyni.
Umfjöllun á visir.is - Víðir fékk afmælisköku
Víðir fékk afmælisköku á fundinum: „Maður fær bara tár í augun“
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, er 53 ára í dag og fékk hann heldur betur óvænta gjöf á upplýsingafundi almannavarnadeild ríkislögreglustjóra í Skógarhlíð í dag.
Anna Birna Jensdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Sóltúns, tók til máls á fundinum í dag og var hún þar fyrir hönd Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Hún afhenti Víði afmælisköku frá öllum framlínustarfsmönnunum á hjúkrunarheimilinu og öllum íbúunum líka og þakkaði honum fyrir vel unnin störf.
„Maður fær nú bara tár í augun,“ sagði Víðir á fundinum.
Mynd dagsins: Þetta stóð í afmæliskortinu til Víðis Reynissonar
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, á afmæli í dag en hann er 53 ára gamall. Af því tilefni færði Anna Birna Jensdóttir, stjórnarmaður hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, honum köku.
Í kortinu stóð:
Kæri Víðir
Íbúar og starfsfólk hjúkrunarheimila sendir þér hugheilar hamingjuóskir í tilefni dagsins.
Fyrir hönd Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu,
Pétur Magnússon, formaður stjórnar.
Gangi þér allt í haginn!
Víðir komst við þegar hann tók við kökunni og sagði: „Ég fæ nú bara tár í augun“
Í lok fundarins skoraði Víðir á fólk að gera gagn fyrir samfélagið og taka þátt í stóra plokkdeginum á laugardaginn en muna um leið tveggja metra regluna og vera um leið ekki í of stórum hópum.
Í lok fundar sagði Víðir:
„Svo langar mig bara að þakka fyrir mig.“
Að því mæltu sendi hann íslensku þjóðinni fingurkoss.