Meðfylgjandi tilkynning verður send til aðstandenda Hrafnistuheimilanna í dag:
Ágæti aðstandandi,
22. apríl 2020
Það er okkur ánægja að kynna að ákveðið hefur verið að opna á heimsóknir á Hrafnistuheimilunum frá og með 4. maí næstkomandi, þó með ákveðnum takmörkunum.
Þó mikið hafi áunnist í baráttunni gegn COVID-19 erum við ekki komin í höfn og sýna þarf ýtrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Nauðsynlegt er að takmarka þann fjölda gesta sem kemur inn í heimilið á hverjum tíma, þar sem líkur á smitum aukast með hverjum þeim aðila sem kemur nýr inn á heimilið. Þess vegna biðjum við ykkur að reyna að velja einn aðstandanda sem kemur inn fyrstu tvær vikurnar. Vonir eru bundnar við að rýmka enn frekar um heimsóknir í júní 2020.
Þriðjudaginn 28. apríl mun hvert heimili vera í sambandi við aðstandendur með nánari kynningu á því hvernig úthlutanir / pantanir fara fram.
Vinsamlega kynnið ykkur vel eftirfarandi heimsóknarreglur:
- Þú þarft að eiga úthlutaðan / pantaðan tíma til að koma í heimsókn.
- Ekki panta heimsóknartíma og alls ekki koma í heimsókn ef:
- Þú ert í sóttkví
- Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku
- Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
- Þú ert með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
- Heimild til heimsókna einu sinni í viku er veitt frá 4. maí. Ef vel gengur í baráttunni við veiruna, verður tíðni heimsókna aukin.
- Við hvetjum ykkur til að hlaða niður í símana ykkar smitrakningnarappi almannavarna Rakning C-19 fyrir 4. maí
- Bíða skal eftir starfsmanni í anddyri heimilis á merktu svæði og hann fylgir ykkur til íbúa. Munið að þvo eða/og spritta hendur áður en heimsókn hefst og að henni lokinni.
- Virða skal 2ja metra regluna og forðast beina snertingu við íbúa eins og hægt er.
- Óheimilt er að eiga samskipti við aðra aðstandendur af öðru sóttvarnarsvæði (önnur deild en þinn íbúi býr á) á meðan beðið er eftir að fara inn á deildina.
Við hvetjum ykkur til að nýta tímann til þess að heimsækja ástvin ykkar og ef einhver fyrirspurn er um heilsu hans, þá vinsamlega ræðið það á öðrum tíma í síma við hjúkrunarfræðing.
Það er von okkar að þessi ráðstöfun létti íbúum og aðstandendum lífið enda almennt heimsóknarbann ekki verið áður í gildi í 60 ára sögu Hrafnistu. Hættan er hins vegar langt frá því að vera liðin hjá. Á næstu vikum og mánuðum þurfum við öll að sýna þolinmæði og halda þetta út því einungis með breiðri samstöðu mun okkur takast að sigla í gegnum þennan öldudal og sigrast að lokum á skaðvaldinum.
Kær kveðja,
Neyðarstjórn Hrafnistu
Bréf neyðarstjórnar til aðstandenda