Leikskólabörn úr leikskólanum Brákarborg heimsóttu okkur í garðinn á Hrafnistu í Laugarási í dag. En þar sungu þau fyrir íbúa, úti í sólskininu. Margir ráku nefið út um glugga og svalir þó kalt væri. Það var yndislegt að fá þau í heimsókn, við færum þeim bestu þakkir fyrir komuna.