Kristín Thomsen hefur verið ráðin aðstoðardeildarstjóri sjúkra-og iðjuþjálfunar á Hrafnistu Sléttuvegi frá febrúar 2020. Kristín útskrifaðist með B.Sc. í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri árið 2014 og með viðbótardiplóma í öldrunarþjónustu frá Háskóla Íslands árið 2018. Eftir útskrift vann Kristín í Maríuhúsi, dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun og síðustu þrjú árin sem iðjuþjálfi á Hrafnistu Hraunvangi.
Við bjóðum Kristínu hjartanlega velkomna til liðs við okkur á Sléttuveginn og í stjórnendahóp Hrafnistu.