Top header icons

Fyrir starfsfólk

 

Örugg skjalamótttaka

Örugg skjalamótttaka

Fyrir starfsfólk

Hrafnista á Facebook

Forstöðumaður

Sara Pálmadóttir er  forstöðumaður Hrafnistu Ísafold í Garðabæ, sara.palmadottir[hja]hrafnista.is 

Hjúkrunardeildarstjóri er Rannveig Albína Norðdahl, rannveig.norddahl[hja]hrafnista.is 

Læknaþjónusta

Læknar eru á vakt á Hrafnistuheimilunum allan sólarhringinn. Almenn læknisþjónusta felur í sér eftirlit og móttöku á deildum ásamt því að sinna bakvakt allan sólarhringinn. Aðgengi að sérhæfðari læknisþjónustu er veitt innan eða utan heimilanna með tilvísun lækna. Hjúkrunarfræðingur á viðkomandi deild Hrafnistu annast milligöngu ef óskað er eftir að ná samband við lækni. Læknar Hrafnistu sinna öllum átta Hrafnistuheimilunum:

 Hrafnistu Laugarási, Reykjavík

 Hrafnistu Hraunvangi, Hafnarfirði

 Hrafnistu Boðaþingi, Kópavogi

 Hrafnistu Ísafold, Garðabæ

 Hrafnistu Skógarbæ, Reykjavík

 Hrafnistu Hlévangi, Reykjanesbæ

 Hrafnistu Nesvöllum, Reykjanesbæ

Hrafnistu Sléttuvegi, Reykjavík

 
Veitt er fagleg þjónusta sem tekur mið að þörfum íbúanna og hefur jákvæð áhrif á lífsgæði fólks. Markmið læknisþjónustunnar er að stuðla að sem bestri  líkamlegri og andlegri heilsu íbúa. Megin áhersla er lögð á að auka færni, sjálfstæði og lífsgæði einstaklingsins eftir leiðum læknisfræðinnar. Sú stefna og þau markmið eru í samræmi við markmið Hrafnistu um að vera leiðandi aðili í þjónustu og umönnun aldraðra.
 
Læknisþjónusta Hrafnistuheimilanna á höfuðborgarsvæðinu er framkvæmd í samvinnu við Heilsuvernd.
 
Læknisþjónusta Hrafnistuheimilanna í Reykjanesbæ er framkvæmd í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Hjúkrun

Á Hrafnistu Ísafold starfa hjúkrunarfræðingar, læknar, sjúkraliðar, félagsliðar og starfsfólk við umönnun heimilismanna allan sólahringinn. Hjúkrun og umönnun er veitt samkvæmt einstaklingshæfðri hjúkrun, á þann hátt að hver heimilismaður hefur sinn hjúkrunarfræðing, sjúkraliða og/eða starfsmann í aðhlynningu sem hafa umsjón með umönnun hans. Markmið hjúkrunar er að veita hjúkrun og umönnun eftir þörfum hvers og eins. Einnig er mikilvægt að styrkja heimilismenn til sjálfshjálpar og auðvelda þeim að aðlagast breyttum aðstæðum. Ekki er síður  nauðsynlegt að tryggja vellíðan og öryggi heimilismanna og standa vörð um sjálfsmynd og sjálfsvirðingu þeirra. Þá er einnig mikilvægt að efla samvinnu og stuðning við fjölskyldur heimilismanna. Leitast er við að hafa fjölskyldufund einum til tveimur mánuðum eftir að heimilismaður flytur á heimilið og síðan eftir þörfum verði breytinga vart á líðan hans.
 

Heiðmörk 2. hæð

Heiðmörk er 10 rýma eining á 2 hæð heimilisins. Á Heiðmörk er garður sem er mikið notaður í góðum veðrum og er gjarnan staðið fyrir ræktun á grænmeti þar á sumrin. Allir íbúar eru með sér herbergi með sturtu og salerni, auk þess er lítil eldhúsaðstaða á öllum herbergjum. Nafnið vísar í Heiðmörkina sem er stærsta útivistarsvæðið í nágrenni Reykjavíkur og tilheyrir Græna treflinum sem umlykur allt Höfuðborgarsvæðið.

Síminn á Heiðmörk er 535-2221, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings er 535-2255.

Þórsmörk 2. hæð

Þórsmörk er 10 rýma eining á 2 hæð heimilisins. Á Þórsmörk eru skjólgóðar svalir, en eldhús og stofa eru í opnu björtu rými. Allir íbúar eru með sér herbergi með sturtu og salerni, auk þess er lítil eldhúsaðstaða á öllum herbergjum.  Nafnið vísar í einn fallegasta stað Íslands Þórsmörk sem kúrir á milli jökla á suðurlandi.

Síminn á Þórsmörk er 535 -2226, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings er 535-2255.

Ásbyrgi 3. hæð

Ásbyrgi er 10 rýma eining á 3 hæð heimilsins. Á Ásbyrgi eru skjólgóðar svalir, en eldhús og stofa eru í opnu björtu rými. Allir íbúar eru með sér herbergi með sturtu og salerni, auk þess er lítil eldhúsaðstaða á öllum herbergjum. Nafið vísar í Ásbyrgi á norðurlandi þar sem er gróskumikill birkiskógur umvefur hamrabelti og fyrir botni hvílir friðsæl tjörn sem er heimkynni rauðhöfðaanda á sumrin. Margir finna ákveðna helgi hvíla yfir staðnum og telja jafnvel að þar séu híbýli álfa og huldufólks.

Síminn á Ásbyrgi  er 535 -2236, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings er 535-2255.

Snæfell 3. hæð

Snæfell er 10 rýma eining á 3 hæð heimilisins. Á Snæfelli eru skjólgóðar svalir, en eldhús og stofa eru í opnu björtu rými. Allir íbúar eru með sér herbergi með sturtu og salerni, auk þess er lítil eldhúsaðstaða á öllum herbergjum. Nafnið vísar í fjallið Snæfell sem er hæsta fjall Íslands utan jökla (1833m) og er fjallið sjálft og svæðið umhverfis það innan marka Vatnajökulsþjóðgarðs. Snæfell er nokkuð keilulaga, enda forn megineldstöð sem hefur ekki rumskað í 10 þúsund ár. Mun það hafa myndast síðla á ísöld og er því yngsta eldstöð Austurlands. Vegna þess, hve hátt Snæfell rís hverfa efstu fannir þess ekki á sumrin og í því eru stuttir brattir skriðjöklar.

Síminn á Snæfelli er 535 -2231, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings er 535-2255.

Dynjandi 4. hæð                        

Dynjandi er 10 rýma eining á efstu hæð heimilisins. Á Dynjanda eru rúmgóðar svalir út af stofu en eldhús og stofa eru í opnu björtu rými. Allir íbúar eru með sér herbergi með sturtu og salerni, auk þess er lítil eldhúsaðstaða á öllum herbergjum. Nafnið vísar til mesta foss Vestfjarða Dynjanda. Hann má finna í Dynjandisvogi fyrir botni Arnarfjarðar. Fossinn og umhverfi hans hans var friðlýst sem náttúruvætti árið 1981, enda um einstaka náttúruperlu að ræða

Síminn á Dynjanda er 535-2241, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings er 535-2255.

Arnastapi 4. hæð

Arnastapi er 10 rýma eining á efstu hæð heimilisins. Á Arnastapa eru skjógóðar og rúmgóðar svalir af stofu en eldhús og stofa eru í opnu björtu rými. Allir íbúar eru með sér herbergi með sturtu og salerni, auk þess er lítil eldhúsaðstaða á öllum herbergjum. Nafnið vísar í lítið sjávarþorp á sunnanverðu Snæfellsnesi. Mikil náttúrufegurð er í grennd við Arnarstapa. Ströndin milli Stapa og Hellna var gerð að friðlandi 1979, en hún þykir sérkennileg og fögur á að líta.

Síminn á Arnastapa er 535-2246, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings er 535-2255.

 

 

 

 

Til baka takki

Þessi vefsíða notar kökur (cookies). Með því að halda áfram að nota vefinn, samþykkir þú þessa virkni vefsins.
Samþykkja kökur