Mikið var um dýrðir á Hrafnistu í Kópavogi í gærkvöldi, fimmtudaginn 12. október, en þar fór fram hinn árlegi haustfagnaður. Um 170 manns sóttu fagnaðinn í gær og skemmti fólk sér vel í sínu fínasta pússi yfir góðum mat og frábærri veislustjórn og skemmtun þeirra Selmu Björnsdóttur og Jógvan Hansen. Eftir borðhaldið var síðan slegið upp balli með Sighvati Sveinssyni.
Meðfylgjandi eru ljósmyndir frá kvöldinu sem Hreinn Magnússon tók.