Ásta María Traustadóttir, starfsmaður í borðsal Hrafnistu í Hafnarfirði, hefur um þessar mundir starfað í 30 ár á Hrafnistu. Þessum tímamótum var að sjálfsögðu fagnað með veislu með viðeigandi hætti á dögunum. Hrafnista óskar Ástu Maríu til hamingju með áfangann og þakkar fyrir tryggð og góð störf í þágu Hrafnistu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Ásta María, Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði og Hrönn Benediktsdóttir deildarstjóri í borðsal/eldhúsi.