Elísabet Olsen, starfsmaður í aðhlynningu á Ölduhrauni Hrafnistu Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði, Elísabet, Hrefna Ásmundsdóttir aðstoðardeildarstjóri á Ölduhrauni og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.