Guðfinna Eðvardsdóttir hefur verið ráðin aðstoðardeildarstjóri Hrafnistu Hlévangi frá 1. ágúst næstkomandi. Guðfinna starfaði sem læknaritari við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja frá 1995 til 2005. Útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur B.Sc. frá Háskólanum á Akureyri árið 2009. Starfaði sem hjúkrunarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja við heimahjúkrun og á lyf- og handlækningadeild 2009-2010. Kom til starfa á Hlévangi 2010 sem þá var rekið af Dvalarheimili aldraðra á suðurnesjum, Guðfinna hefur starfað hjá Hrafnistu frá því að Hrafnista tók við rekstrinum árið 2014. Jafnframt starfaði Guðfinna á Lærdal alders og sjukeheim í Noregi árið 2014. Samhliða hjúkrun hef hún starfað sem flugfreyja undanfarin ár. Í haust mun hún hefja diplomanám í stjórnun í heilbrigðisþjónustu við Háskólann á Akureyri. Við bjóðum Guðfinnu velkomna í stjórnendahóp Hrafnistu. |