Þorrablót Hrafnistu Kópavogi var haldið með hefðbundnu sniði í hádeginu á Bóndadaginn, þann 22. janúar sl. Hinn margrómaði þorramatur rann ljúft niður með lindarvatni og íslensku brennivíni.
Gleði og söngur var við völd og tekinn var léttur hringdans að þjóðlegum sið.