Friðbjörg Proppé, starfsmaður í ræstingu Hrafnistu í Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár.
Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd er einnig Jocelyn A. Maglangit, starfsmaður í ræstingu, en hún átti 5 ára starfsafmæli og fékk afhenta gjöf af því tilefni.